VEITINGAHÚSAFATNAÐUR
Northwear býður upp á mikið úrval starfsmannafatnaðar fyrir starfsfólk veitinga- og kaffihúsa. Þegar um stærri hópa er að ræða kemur til greina sérhönnun og framleiðsla, en úrval tilbúins fatnaðar er mikið og fjölmargir möguleikar í boði hvað varðar snið, liti og heildarútlit. Myndirnar hér að neðan sýna aðeins brot af þeim fatnaði sem Northwear býður fyrir veitingahús. Við mælum því með að hafa samband eða kíkja við hjá okkur til að fá nánari upplýsingar og verð.








