JAKKAFÖT OG SKYRTUR
Hágæðafatnaður á verði sem þú ræður við. Við erum afar stolt af að bjóða Atelier Torino jakkaföt frá Odermark og skyrtur frá Seidensticker á verði sem ekki hefur áður sést. Þetta eru tvö þýsk hágæðamerki sem margir þekkja. Við náum að bjóða verð sem er um 40% lægra en út úr búð, sem byggist á því að við höldum ekki lager á Íslandi. Þú kemur til okkar í máltöku/mátun, velur snið og liti og við afhendum þér fatnaðinn 2 vikum síðar. Jakkaföt, stakar buxur og jakkar frá Atelier Torino eru hönnuð á Ítalíu og framleidd úr úrvals ítalskri ull. Starfsfólk okkar sér síðan um fatabreytingar ef þörf er á.
Seidensticker er stærsti skyrtuframleiðandi Evrópu og hefur framleitt skyrtur frá 1919, þegar Walter Seidensticker hóf framleiðslu á skyrtum á heimili foreldra sinna. Í dag er það þriðji ættliður Seidensticker fjölskyldunnar sem stjórnar fyrirtækinu sem lengi hefur verið í fararbroddi varðandi þróun á skyrtuefnum og frágangi. Seidensticker skyrtur eru nú seldar í 78 löndum.
Smelltu á kynningarnar hér að neðan.....


