HÓTELFATNAÐUR
Northwear hefur þjónað fjölda hótela af ýmsum stærðum og gerðum undanfarin ár. Við vitum að fatnaður hótelstarfsmanna er afar fjölbreyttur eftir deildum og við þekkjum líka að hann þarf að vera þægilegur, en ekki síður fallegur. Við ýmist sérhönnum og framleiðum fatalínur í samráði við viðskiptavini okkar, eða bjóðum svokallaða lagervöru þar sem auðvelt er að bæta við fatnaði eftir því sem breytingar verða á starfsliði. Úrvalið er mikið bæði í sniðum og litum og aðeins hægt að sýna hluta þess hér að neðan. Hafið endilega samband við starfsfólk okkar og bókið tíma þar sem hægt er að fara nánar yfir þá fjölbreyttu möguleika sem í boði eru.








