HEILDSALA
Heildsala Northwear byggir á gömlum grunni, en um áramótin 2010/2011 keypti Northwear rekstur Kr. Þorvaldsson & Co ehf sem var stofnað 1954 og sameinaði Northwear ehf. Við erum stolt af að bera kyndilinn áfram á Íslandi og flytja inn og dreifa til smásala vörumerkjum sem mörg hver eru meira en aldargömul. Má þar nefna Lee, stofnað 1889, Hammerthor, stofnað 1893 og Wrangler sem nær aftur til 1897. Þessi vörumerki hafa aldrei verið sterkari en í dag og höfða til allra kynslóða sem fyrri daginn.












