HEILBRIGÐISFATNAÐUR

Við bjóðum afar fjölbreytt úrval fatnaðar fyrir starfsfólk í heilbrigðisgeiranum. Þessi fatnaður er þýskur og kemur frá Profashion sem framleiðir fatnað fyrir flestar deildir sjúkrahúsa. Jafnframt er mikið úrval af þægilegum og vönduðum fatnaði fyrir starfsfólk í hverskyns umönnunarstörfum. Fatnaðurinn er ýmist úr 35% bómull og 65% polyester eða 100% bómull. Úrvalið er mikið bæði í sniðum og litum og aðeins hægt að sýna hluta þess hér að neðan. Hafið endilega samband við starfsfólk okkar og bókið tíma þar sem hægt er að fara nánar yfir þá fjölbreyttu möguleika sem í boði eru.