EINKENNISFATNAÐUR
Einkennisfatnaður frá Northwear er hannaður og framleiddur í samvinnu við virta danska fataframleiðendur með langa reynslu af þjónustu við fyrirtæki s.s. SAS, Thomas Cook, Matas, Qatar Airways auk opinberra stofnana á Norðurlöndum. Við ýmist hönnum einkennisfatnað fyrirtækja frá grunni, eða höldum áfram framleiðslu núverandi fatalínu sé þess óskað. Northwear er eitt örfárra fyrirækja sem býður heildarlausnir í fyrirtækjafatnaði, þ.m.t. sérframleidda hnappa, barmmerki, höfuðföt, slæður, bindi, yfirhafnir, veski, töskur og skó. Við einföldum leiðina að lausninni.








